3. umferð Politiken: Daði vann, Atli tapaði



Daði Ómarsson (2091) sigraði Danann, Peter Thomsen (1875), en Atli Antonsson (1720) tapaði fyrir Dananum, Ib V. N. Jensen (1986), í þriðju umferð Politiken Cup sem fram fór í dag.  Daði er með 2 vinninga í 47.-129. sæti en Atli er með 0,5 vinning í 264.-285. sæti.

Alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377), og Ólafur Gísli Jónsson (1899) unnu sínar skákir en Bjarni Jens Kristinsson (1985) gerði jafntefli.

24 skákmenn eru efstir með fullt hús að lokinni þriðju umferð.

Í fjórðu umferð sem hefst á morgun kl. 11 að íslenskum tíma mætir Daði danska Fide meistaranum, Tom Petri Petersen (2310), en Atli Dananum, Morten Nielsen (2006).

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).

Heimasíða mótsins