Wow air vormót TR hefst 23. mars



Hið glæsilega Wow air Vormót Taflfélags Reykjavíkur hefst í skákhöll félagsins að Faxafeni 12 mánudaginn 23. mars  Frábærar viðtökur er mótið var haldið í fyrsta sinn í fyrra tryggja að það verður nú árlegur viðburður í fjöbreyttri mótaflóru félagsins.

 

Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á fyrstu 40 leikina en eftir það bætast við 15 mínútur.  30 sekúndur bætast við eftir hvern leik alla skákina.  Teflt verður einu sinni í viku á mánudagskvöldum og hefjast umferðirnar kl. 19.30  Tvær yfirsetur (bye) verða leyfðar í umferðum 1-5.

 

Mótið er fyrst og fremst hugsað fyrir sterkari skákmenn og er frábær upphitun fyrir Skákþing Íslands sem hefst að móti loknu. 

 

Í A – meistaraflokk hafa allir skákmenn með GM/IM/FM/WGM titil þátttökurétt, auk allra skákmanna með yfir 2200 Elo skákstig.

Í B – áskorendaflokk hafa allir skákmenn með yfir 2000 Elo skákstig þátttökurétt.

Skákmenn sem uppfylla stigalágmörkin á 1. mars eða ná þeim á Reykjavik Open er gjaldgengir í mótið.

 

Tveimur skákmönnum á stigabilinu 2000 – 2199 verður boðið sæti í A flokki.  Þau sæti eru fyrst og fremst hugsuð fyrir unga og upprennandi skákmenn á öllum aldri í mikilli framför. 

Allt að fjórum skákmönnum sem ekki hafa tilskilin stig fyrir B flokkinn verður boðin þátttaka þar.  Þau sæti eru fyrst og fremst ætluð efnilegustu skákkrökkunum og unglingunum okkar, en allir geta sótt um.

Hægt er að sækja um þessi 6 sæti með því að senda póst á taflfelag@taflfelag.is eða hafa samband við formann félagsins Björn Jónsson í síma 8999268 eigi síðar en 18. mars.

 

Sigurvegari Wow air Vormótsins í fyrra var Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari.  Magnús Pálmi Örnólfsson sigraði í B flokki og annar varð Kjartan Maack.  Þeir tveir unnu sér inn keppnisrétt í A – flokki í ár.

Í fyrra tóku þátt fimm stórmeistarar, tveir alþjóðlegir meistarar, fjórir Fide meistarar og einn stórmeistari kvenna

 

Glæsileg verðlaun eru í mótinu í boði Taflfélags Reykjavíkur og vina okkar hjá Wow air.

 

A – Meistaraflokkur:

1. Flugmiði með Wow air á einn af áfangastöðum félagsins (skattar og gjöld innifalið) plús 40.000 krónur

2. 40.000 krónur

3. 20.000 krónur

 

B – Áskorendaflokkur:

1. Flugmiði með Wow air á einn af áfangastöðum félagsins (skattar og gjöld innifalið) plús 20.000 krónur

2. 20.000 krónur

3. 10.000 krónur

 

Auk þess verða veittir bikarar fyrir efsta sætið í hvorum flokki auk farandbikars fyrir sigurvegara A flokks.  Verðlaunapeningar fyrir annað og þriðja sætið í báðum flokkum.

Að lokum eiga allir keppendur möguleika á að vinna glæsilegar DGT  skákklukkur  en tvær slíkar verða dregnar út í happdrætti við verðlaunaafhendingu.

Tvö efstu sætin í B – flokki veita þátttökurétt í A flokki að ári. 

 

Umferðatafla:

1. umferð mánudag 23. mars kl. 19.30

2. umferð mánudag 30. mars  kl. 19.30

Páskahlé

3. umferð mánudag 13. apríl  kl. 19.30

4. umferð mánudag 20. apríl  kl. 19.30

5. umferð mánudag 27. apríl  kl. 19.30

6. umferð mánudag 04. maí   kl. 19.30

7. umferð mánudag 11. maí   kl. 19.30

 

Verðlaunaafhending mun fara fram föstudagskvöldið 22. maí, en þá mun fara fram skemmtikvöld hjá TR. 

Tekið skal fram að 25% af verðlaunafé úr Wow air mótinu verður haldið eftir ef verðlaunahafar mæta ekki á verðlaunaafhendinguna til að taka við verðlaunum sínum án gildra ástæðna.

Ef fresta þarf skákum verða þær viðureignir tefldar á miðvikudagskvöldum kl. 19.30 (samhliða skákmóti öðlinga).

 

Þátttökugjald er kr. 5000 fyrir félagsmenn Taflfélags Reykjavíkur en kr. 10.000 fyrir aðra. 

Þeir skákmenn sem skrá sig fyrir 20. mars fá 50% afslátt af þátttökugjaldinu.  Frítt er fyrir titilhafa á mótið skrái þeir sig fyrir 20. mars, annars kr. 5000. 

 

Skráning fer fram hér og lýkur á miðnætti 22. mars.

 

Hér má sjá keppendalistann.

 

Taflfélag Reykjavíkur hvetur alla skákmenn til að taka þátt enda var mótið í fyrra eitt sterkasta og best heppnaða mót ársins.

  • WOW air mótið 2014