Hinn ungi og efnilegi liðsmaður Taflfélags Reykjavíkur, Vignir Vatnar Stefánsson, tekur þátt fyrir Íslands hönd í Heimsmeistaramóti ungmenna sem hófst í dag í Maribor, Slóveníu. Vignir, sem er á tíunda aldursári, er á meðal tæplega 200 keppenda í opnum flokki tíu ára og yngri. Mótið er gríðarlega fjölmennt og telur alls tæplega 1.600 keppendur sem koma frá u.þ.b. eitthundrað löndum en keppt er í tólf flokkum. Í sínum flokki er Vignir rétt fyrir ofan miðjan hóp í stigaröðinni. Með Vigni í för er faðir hans ásamt stórmeistaranum Helga Ólafssyni.
Alls eru tefldar ellefu umferðir og fer síðasta umferðin fram sunnudaginn 18. nóvember en hvílt er á þriðjudag. Fyrsta umferð fór fram í dag og hafði Vignir betur með svörtu gegn keppanda frá Singapore. Önnur umferð hefst á morgun föstudag kl. 14 að íslenskum tíma en ekki liggur fyrir hverjum Vignir mætir. Athygli er vakin á því að skákir tíu efstu borðanna í flokki Vignis eru sendar beint út á vefnum.
- Heimasíða mótsins
- Úrslit, staða og pörun
- Beinar útsendingar