Vignir Vatnar Stefánsson komst aftur á sigurbraut þegar hann sigraði rúmenskan skákmann í fjórðu umferð Heimsmeistaramóts áhugamanna sem fram fór í dag. Vignir hafði svart að þessu sinni og er sigurinn mikilvægur en nú þegar mótið er næstum hálfnað hefur Vignir 2,5 vinning og er í 53.-79. sæti og góðan stigagróða í farteskinu. Fjórir keppendur eru efstir með fullt hús vinninga.
Fimmta umferð fer fram á morgun og hefst að venju kl. 12.30 en þá stýrir Vignir hvítu mönnunum gegn öðrum Rúmena sem hefur 1883 stig. Ljóst er að sigur í þeirri viðureign færir okkar mann í efri hluta töflunnar.
Í dag fór að auki fram hraðskákmót meðfram aðalmótinu þar sem 112 keppendur tóku þátt þar sem flestir höfðu 1800-2200 elo stig. Níu umferðir voru tefldar með þriggja mínútna umhugsunartíma ásamt tveggja sekúndna viðbótartíma. Vignir Vatnar, sem er öflugur í hraðskákinni, gerði sér lítið fyrir og hafnaði í 3.-7. sæti með sjö vinninga og varð efstur keppenda yngri en tólf ára. Eftir stigaútreikning sat Vignir í fjórða sæti og hlýtur u.þ.b. 150 evrur í verðlaun.
- Skákir Vignis
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins