Undanfarin ár hefur Taflfélag Reykjavíkur staðið fyrir gríðarlega mörgum skákmótum. Dagskráin 2021 er einhernvegin svona:
Skákþing Reykjavíkur
Skákmót öðlingamót
Skákmót yrðlinga
U-2000 mótið
Haustmót TR
U.þ.b sex bikarsyrpur og u.þ.b þrjú helgarskákmót og/eða “túrbó mót”
Skemmtikvöld
Atskákmót Reykjavíkur
Þriðjudagsmót og ýmis önnur mót með stuttum tímamörkum
ásamt fjölmörgum barna- og unglingamótum.
TR leitast því eftir að fá fleiri öfluga skákdómara til að aðstoða okkur við að viðhalda þessu metnaðarfulla starfi, sem heldur uppi kappskáksenunni á Höfuðborgarsvæðinu. Endilega hafið samband á taflfelag@taflfelag.is