TR-ingurinn öflugi, Torfi Leósson sigraði örugglega á fimmtudagsmóti sem fram fór í kvöld. Torfi sigraði alla sína andstæðinga og hlaut 7 vinninga í 7 skákum. Annar með 6 vinninga varð norðlendingurinn knái, Halldór B. Halldórsson og Jon Olav Fivelstad hafnaði í þriðja sæti með 5 vinninga.
Alls tóku 22 þátt að þessu sinni og var mikið fjör í skákhöllinni en ásamt glæsilegum verðlaunapeningi voru óvænt aukaverðlaun í boði sem að þessu sinni var bíómiði. Aukaverðlaun verða á öllum æfingum fyrsta fimmtudag í mánuði í vetur.
Úrslit:
- 1. Torfi Leósson 7 v af 7
- 2. Halldór B Halldórsson 6 v
- 3. Jón Olav Fivelstad 5 v
- 4.-11. Páll Andrason, Jóhann H Ragnarsson, Kristján Örn Elíasson, Dagur Andri Friðgeirsson, Dagur Kjartansson, Hörður Hauksson, Þórir Benediktsson, Magnús Kristinsson 4 v
- 12.-13. Helgi Brynjarsson, Eiríkur Örn Brynjarsson 3,5 v
- 14.-17. Ólafur Gauti, Tjörvi Schioth, Örn Leó Jóhannsson, Geir Guðbrandsson 3 v
- 18.-19. Helgi Stefánsson, Birkir Karl Sigurðsson 2,5 v
- 20. Sveinn Gauti 2 v
- 21. Benjamín G Einarsson 1 v
- 22. Sindri S Jónsson 0 v