Torfi Leósson, ferskur úr fjallgöngum í Nepal, sigraði örugglega á fimmtudagsmótinu 27. janúar sl. Aðrir keppendur voru duglegir að reita fjaðrirnar hver af öðrum , þannig að Torfi var að lokum eini taplausi keppandinn og búinn að tryggja sigurinn fyrir síðustu umferð. Lokastaðan varð:
1 Torfi Leósson 6
2 Eiríkur K. Björnsson 5
3-4 Örn Leó Jóhannsson 4.5
Birkir Karl Sigurðsson 4.5
5-9 Vignir Vatnar Stefánsson 4
Stefán Már Pétursson 4
Elsa María Kristínardóttir 4
Guðmundur Gunnlaugsson 4
Eyþór Trausti Jóhannsson 4
10-11 Óskar Long Einarsson 3
Björgvin Kristbergsson 3
12 Jakob Alexander Petersen 2
13 Eysteinn Högnason 1