SM Þröstur Þórhallsson (2442), AM Stefán Kristjánsson (2472) og Frímann Benediktsson (1939) sigruðu sína andstæðinga í annari umferð Reykjavíkurskákmótsins. Þröstur og Stefán lögðu stigalægri andstæðinga en Frímann sigraði Ólaf Þórsson (2199). Hannes Hlífar og Kristján Örn gerðu jafntefli en aðrir TR-ingar töpuðu.
Sextán skákmenn eru efstir og jafnir með með fullt hús og þar á meðal er Þröstur.
Þriðja umferð fer fram á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 16 en teflt er í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins og heimasíðu Skáksambands Íslands.