TR varð um helgina Íslandsmeistar Skákfélaga 2021-2022 með sögulegum sigri í hinni nýstofnuðu úrvalsdeild! Glæsilegur og verðskuldaður árangur!
Nánari skil verða gerð mótinu í Tímaritinu Skák sem kemur út í apríl, og pistill um árangur einstakra TR liða og félagsmanna verður birtur hér á heimasíðunni á næstu dögum.
TR sendi sjö lið til leiks, langflest allra félaga. B liðið heldur sínu sæti í 1. deild og C liðið heldur sínu sæti í 2. deild. D liðið vann glæastan sigur í 3. deild og kemst því upp í 2. deild og verður þar ásamt C liðinu í haust. E liðið lenti í 2. sæti í 4. deild og teflir því í 3. deild í haust.
F og G liðin stóðu sig vel í 4. deildinni.
Á myndinni má sjá hluta af liðsmönnum TR-A, Íslandsmeistarar 2022! Myndina tók Þorsteinn Magnússon. Liðsstjóri var Ríkharður Sveinsson og eftirfarandi skákmenn tefldu með A-liðinu:
GM Guðmundur Kjartansson og GM Helgi Áss Grétarsson 10 skákir
FM Ingvar Þór Jóhannesson 8 skákir
GM Þröstur Þórhallsson og CM Bárður Örn Birkisson 7 skákir
GM Oleksandr Sulypa (Úkraína) og GM Mykhaylo Oleksiyenko (Úkraína) 5 skákir
FM Mikkel Manosri Jacobsen (Danmörk) 5 skákir
Björgvin Víglundsson 4 skákir
GM Margeir Pétursson, IM Karl Þorsteins, Omar Salama og Daði Ómarsson: 3 skákir
Alexander Oliver Mai, Þorvarður Fannar Ólafsson og Árni Ármann Árnason: 2 skákir
FM Magnús Örn Úlfarsson: 1 skák