Á annan tug skákmanna lét hvorki óveður né afleit úrslit í handbolta gegn Austurríkismönnum hafa áhrif á sig og mættu í skákhöllina í Faxafeni á fimmtudagsmót TR. Að lokum stóð Sverrir Sigurðsson uppi sem öruggur sigurvegari; með fullt hús og vinning í forskot fyrir síðustu umferð tryggði hann sér sigurinn með jafntefli gegn Stefáni Péturssyni.
Úrslit:
1 Sverrir Sigurðsson 6.5
2 Birkir Karl Sigurðsson 5
3-4 Eiríkur K. Björnsson 4.5
Stefán Pétursson 4.5
5-9 Jan Valdman 4
Guðmundur Lee 4
Jón Úlfljótsson 4
Örn Leó Jóhannsson 4
Björgvin Kristbergsson 4
10 Unnar Þór Bachmann 3.5
11-12 Alexander Már Brynjarsson 3
Gunnar Friðrik Ingibergsson 3
13-14 Pétur Jóhannesson 2
Jóhann Karl Hallsson 2
15-16 Friðrik Helgason 1
Valur Sveinbjörnsson 1