Stúlknameistaramót Reykjavíkur fer fram í dag



Stúlknameistaramót Reykjavíkur fer fram í Skákhöllinni í Faxafeni sunnudaginn 10. maí og hefst kl. 14.

Tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi og er umhugsunartími fyrir hverja skák 15 mínútur á hvorn keppanda.

Þetta er í sjötta skipti sem Taflfélagi Reykjavíkur heldur mótið, en þess má geta að Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir hefur borið sigur úr býtum fimm ár í röð!

Keppt er um veglegan farandbikar sem hjónin Ólafur S. Ásgrímsson og Birna Halldórsdóttir gáfu. Einnig verða eignarbikarar fyrir þrjú efstu sætin.

Öllum stúlkum á grunnskólaaldri í landinu er heimil þátttaka og geta unnið eignarbikar, en titilinn og farandbikarinn hreppir sú sem efst er að vinningum þeirra er búsettar eru í Reykjavík.

Skráning fer fram á staðnum og hefst kl. 13.30.