Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 19. nóvember



Taflfelag
Stúlkna- og drengjameistaramót Taflfélags Reykjavíkur, fer fram sunnudaginn 19. nóvember í skákhöll T.R. að Faxafeni 12. Þátttaka er ókeypis.

Skráningu í alla flokka lýkur kl. 17 laugardaginn 18. nóvember.

Mótið er opið öllum börnum og unglingum, óháð taflfélagi eða búsetu, sem eru fædd árið 2008 eða síðar

Teflt verður með dálítið breyttu fyrirkomulagi frá fyrri árum:

Aðalkeppnin fer fram í einum opnum flokki og þar verður keppt um sæmdarheitin Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2023 og Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2023. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).  Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Aðalkeppnin hefst kl.13 og má reikna með að hún standi til kl.17 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á þrjá yngri flokka:

Yngri flokkur 1 (f.2013-2014)
Tefldar verða 4 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
Yngri flokkur hefst kl.13 og má reikna með að standi til kl.15 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.12.45.

Yngri flokkur 2 (f.2015-2016)

Tefldar verða 4 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
Yngri flokkur 2 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

Yngri flokkur  3 (f.2017 og síðar)
Tefldar verða 4 umferðir eftir svissnesku kerfi með umhugsunartímanum 10 mínútur á skák, auk þess sem 5 sekúndur bætast við eftir hvern leik (10m+5s).
Yngri flokkur 3 hefst kl.10 og má reikna með að standi til kl.12 c.a. Keppendur staðfesti þátttöku á mótsstað eigi síðar en kl.9.45.

Krakkar sem eru gjaldgengir í yngri flokkana mega velja hvort þau tefla í aðalkeppninni eða í yngri flokkunum.

Verðlaun í opna flokknum:

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og elsta dreng í öllum árgöngum. Elsti árgangurinn er 2008 og yngsti árgangurinn er 2017 og yngri.

Nafnbótina Drengjameistari Taflfélags Reykjavíkur 2023 hlýtur sá drengur sem verður hlutskarpastur þeirra sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur.  Nafnbótina Stúlknameistari Taflfélags Reykjavíkur 2023 hlýtur sú stúlka sem verður hlutskörpust þeirra stúlkna sem eru meðlimir í Taflfélagi Reykjavíkur.

Verðlaun í yngri flokk 1:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2013 og 2014).

Verðlaun í yngri flokk 2:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng í báðum árgöngum (2015 og 2016).

Verðlaun í yngri flokk 3:
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sæti. Til viðbótar verða veitt verðlaun fyrir efstu stúlku og efsta dreng.

Núverandi Reykjavíkurmeistarar eru Jósef Omarsson og Iðunn Helgadóttir.  Skákstjórar verða Torfi Leósson og Alexander Oliver Mai. Hægt verður að kaupa veitingar á staðnum og verður Birnukaffi á sínum stað.

Skráningaform:

Þegar skráðir keppendur:



About Daði Ómarsson

Skák kennari og dómari hjá Taflfélagi Reykjavíkur.