Stórmót Árbæjarsafns og T.R. fer fram á sunnudag



Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í níunda sinn sunnudaginn 11. ágúst. Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 7 mín. á skák.

Breyting verður gerð á lifandi taflinu sem verið hefur árviss atburður á Stórmóti Árbæjarsafns og T.R.  Notast verður nú við taflmennina af útitafli Reykjavíkur í stað “lifandi taflmanna”.  Hefst sú skák klukkan 13.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í Stórmótinu, 12.000 kr., 8.000 kr. og 5.000 kr.

Þátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1.000 fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis fyrir yngri en 18 ára, eldri borgara (67) og öryrkja.  Þátttökugjöld eru jafnframt aðgangseyrir að  safninu en þeir sem þegar hafa aðgang, t.d. með menningarkorti, þurfa ekki að borga þátttökugjald.

Frekari upplýsingar veitir Torfi Leósson, netfang: (torfi.leosson@gmail.com) eða í síma 697-3974.  

Mótið er jafnan upphafsviðburður skákársins, og við vonumst til að sjá sem flesta á þessu skemmtilega móti.