Áfram er haldið í Skákþinginu, spennan eykst og í hverri umferð má finna mörg glæsileg tilþrif. Hér eru nokkur dæmi um þau:
Sigurbjörn Björnsson – Þór Valtýsson. Fide meistarinn er búinn að saumaað Þór og innbyrðir hér vinninginn laglega. Hvítur á leik.Oliver Aron Jóhannesson – Nansý Davíðsdóttir. Menn hvíts eru stilltir upptil sóknar og bíða færis. Hvítur á leik.Haraldur Baldursson – Stefán Bergsson. Stefán vill sókn og lítið annað.Kóngur hvíts er berskjaldaður. Svartur á leik.Lenka Ptacnikova – Ólafur Gísli Jónsson. Hinn geðþekki og yfirvegaðibarnalæknir er ekki eins rólegur á skákborðinu. Hér fær stórmeistarikvenna að finna fyrir því. Svartur á leik.Bárður Örn Birkisson – Dawid Kolka. Peð fyrrverandi Íslandsmeistarabarna eru skæð á drottningarvængnum. Dawid spáir í frekari aðgerðir.Svartur á leik.Vignir Vatnar Stefánsson – Ólafur Hlynur Guðmarsson. Vigni þarf ekki að kynna.Flétturnar þurfa ekki alltaf að vera langar. Hvítur á leik.Brynjar Haraldsson – Pétur Jóhannesson. Pétur er manna iðnastur í skák-mótum. Hér var allt búið að vera upp í loft og þá eru afleikir dýrir. Svartur á leik.