Sólon sigraði á lokamóti Bikarsyrpunnar



IMG_8123

Sólon Siguringason er einn af fjölmörgum efnilegum skákmönnum landsins.

Sólon Siguringason (1283) sigraði á sjötta og síðasta móti Bikarsyrpu TR sem fram fór um líðandi helgi. Sólon hlaut 4,5 vinninga og sigldi hann sigrinum í höfn í lokaumerðinni með sigri á Ísaki Orra Karlssyni (1111) en fyrir umferðina voru þeir efstir og jafnir með 3,5 vinning.

IMG_8134

Einbeittir keppendur.

Í öðru sæti með 4 vinninga var Árni Ólafsson (1155) en Ísak og Kristján Dagur Jónsson urðu jafnir í 3.-4. sæti með 3,5 vinning þar sem Ísak hlýtur 3. sætið eftir stigaútreikning.

IMG_8128

Skákprinsessurnar Ylfa Hákonardóttir og Freyja Birkisdóttir.

Auk verðlauna fyrir lokamótið voru veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur í mótunum sex og var þar hlutskarpastur Jón Þór Lemery. Annar var Kristján Dagur Jónsson og þriðji Ísak Orri.

IMG_8130

Hinn sex ára Bjartur Þórisson varð að játa sig sigraðan gegn hinum margreynda Þorsteini Magnússyni.

Spennandi og skemmtilegri Bikarsyrpu er því lokið í ár og verður þráðurinn tekinn aftur upp í haust og aldrei að vita nema fyrirkomulag mótanna breytist lítið eitt.

IMG_8129

Tvö í framför. Anna Katarina Thoroddsen og Magnús Hjaltason.

Hér að neðan má sjá úrslit allra mótanna í Bikarsyrpunni auk mynda frá mótunum.