Á föstudagskvöld kl. 20.00 er komið að þriðja skemmtikvöldi vetrarins! Í tilefni af einvígi Magnúsar Carlsen og Viswanathan Anand um heimsmeistartitilinn sem hefst í Sochi á laugardag munum við tefla stöður úr innbyrðis viðureignum þessara miklu meistara. En eins og alltaf á skemmtikvöldum TR þá eru sérreglur varðandi mótið.
Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:
- Tímamörkin eru sótt í smiðju Stefáns Steingríms Bergssonar úðunarsérfræðings og framkvæmdastjóra Skákakademíunnar.
- Keppendur skipta milli sín tíu mínútum. Hver 100ELO-stig sem munar á keppendum draga þá í sundur um eina mínútu í hvora átt. 200 stig tvær mínútur í hvora átt. Alveg niður í eina mínútu gegn níu mínútum þegar munurinn er 400 stig eða meir. 1 sekúnda bætist við hvern leik. Sá sem hefur minni tíma á klukkunni í upphafi skákar ræður hvoru megin hún stendur.
- Tefldar verða stöður úr skákum Carlsen og Anand
- Tefldar verða 12 skákir.
- Keppendur tefla innbyrðis eina skák með hvítt og eina skák með svart. (2. skáka viðureign milli keppenda)
- Tvær stöður úr skákum Carlsen/Anand verða í boði í hverri viðureign. Sá sem stýrir svörtu mönnunum í hvorri skák velur hvor staðan er tefld! Hvítur á alltaf fyrsta leik í stöðunum.
- Önnur af stöðunum sem hægt er að velja úr í hverri umferð verður gerð opinber á fimmtudag, og keppendur geta því undirbúið sig og valið þá stöðu þegar þeir fá svart, ..eða ekki.
- Stöðurnar geta bæði verið úr þekktum byrjunum eða þegar þeim sleppir.
- Gerð verða tvö hlé til Billjardbarsferða meðan á mótinu stendur.
- Verðlaun:
1.sæti 8000 króna úttekt á billjardbarnum í formi veitinga.
2.sæti 5000 króna úttekt á Billjardbarnum í formi veitinga.
3.sæti 2000 króna úttekt á Billiardbarnum í formi veitinga. - Þátttökugjald er 500 krónur sem innheimt verður af festu og ákafa fyrir fyrstu umferð.
- Aldurstakmark er 20 ár og rétt er að geta þess að áfengisbann ríkir í húsakynnum Taflfélagsins.
- Sigurvegarinn hlítur nafnbótina Karlöndin 2014
Tekið skal fram að í vor verður haldin skemmtikvöldakóngakeppni þar sem Mórinn 2014, Karlöndin 2014, Úlfurinn 2014 (eða 2015) og aðrir sigurvegarar skemmtikvöldanna munu mætast í uppgjöri þeirra bestu.
Skemmtikvöld Taflfélags Reykjavíkur hafa notið mikilla vinsælda og eru frábær skemmtun!
Verið velkomin.