Hann veldur skelfingu og angist hjá sumum. Vellíðan og hugarró hjá öðrum. Hann er altalaður, eftir honum hefur verið beðið og hér kemur hann.
Úlfurinn 2014 fer fram nú á föstudagskvöldið á síðasta skemmtikvöldi ársins.
Tefldar verða stöður úr skákum hins magnaða sænska stórmeistara Ulf Andersson. Fyrirkomulagið er það sama og var á Anöndinni 2014. Allir skákmenn og þá sérstaklega pósameistarar landsins eru hvattir til að mæta, allavegana ef menn eiga óuppgerðar skák-sakir við Björn Þorfinnsson og Stefán Bergsson. Nú er tækifærið!
Ekki er loku fyrir það skotið að óvæntur leynigestur mæti á svæðið.
Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:
-
Keppendur skipta milli sín tíu mínútum. Hver 100 ELO-stig sem munar á keppendum draga þá í sundur um eina mínútu í hvora átt. 200 stig tvær mínútur í hvora átt. Alveg niður í tvær mínútur gegn átta. 2 sekúndur bætast við hvern leik. Sá sem hefur minni tíma á klukkunni í upphafi skákar ræður hvoru megin hún stendur.
-
Tefldar verða stöður úr skákum Ulf Andersson
-
Tefldar verða 12 skákir.
-
Keppendur tefla innbyrðis eina skák með hvítt og eina skák með svart. (2. skáka viðureign milli keppenda)
-
Tvær stöður úr skákum Ulf verða í boði í hverri viðureign. Sá sem stýrir svörtu mönnunum í hvorri skák velur hvor staðan er tefld! Hvítur á alltaf fyrsta leik í stöðunum.
-
Önnur af stöðunum sem hægt er að velja úr í hverri umferð verður gerð opinber á fimmtudag, og keppendur geta því undirbúið sig og valið þá stöðu þegar þeir fá svart, ..eða ekki.
-
Stöðurnar geta bæði verið úr þekktum byrjunum eða þegar þeim sleppir.
-
Gerð verða tvö hlé til Billjardbarsferða meðan á mótinu stendur.
-
Verðlaun:
1.sæti 8000 króna úttekt á billjardbarnum í formi veitinga.
2.sæti 5000 króna úttekt á Billjardbarnum í formi veitinga.
3.sæti 2000 króna úttekt á Billiardbarnum í formi veitinga. -
Þátttökugjald er 500 krónur sem innheimt verður af festu og ákafa fyrir fyrstu umferð.
-
Aldurstakmark er 20 ár og rétt er að geta þess að áfengisbann ríkir í húsakynnum Taflfélagsins.
-
Sigurvegarinn hlítur nafnbótina Úlfurinn 2014
Tekið skal fram að í vor verður haldin skemmtikvöldakóngakeppni þar sem Mórinn 2014,Karlöndin 2014, Úlfurinn 2014 og aðrir sigurvegarar skemmtikvöldanna munu mætast í uppgjöri þeirra bestu.
Úlfurinn 2014 er eitthvað sem enginn skák- áhugamaður ætti að láta fram hjá sér fara. Skemmtikvöld TR eru frábær skemmtun og hafa notið mikilla vinsælda.
Verið velkomin!