Skákþing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 17. janúar kl. 13.00. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu.
Dagskrá
1. umferð sunnudag 17. janúar kl. 13.00
2. umferð miðvikudag 20. janúar kl. 19.30
3. umferð föstudag 22. janúar kl. 19.30
4. umferð sunnudag 24. janúar kl. 13.00
5. umferð miðvikudag 27. janúar kl. 19.30
6. umferð föstudag 29. janúar kl. 19.30
7. umferð sunnudag 31. janúar kl. 13.00
8. umferð miðvikudag 3. febrúar kl. 19.30
9. umferð föstudag 5. febrúar kl. 19.30
Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.
Hraðskákmót Reykjavíkur verður útfært síðar.
Tímamörk
90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina
Skákstjórn
IA Ríkharður Sveinsson (s. 772 290)
Aðalverðlaun
- 1. sæti kr. 100.000
- 2. sæti kr. 50.000
- 3. sæti kr. 30.000
Aukaverðlaun
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (2000+): kr. 10.000.
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (u2000): kr. 10.000.
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1600): kr. 10.000.
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (u1200): kr. 10.000.
- Besta frammistaða miðað við eigin stig (stigalausir): kr. 10.000. (Miðað er við 1000 stig hjá stigalausum).
Keppandi getur aðeins hlotið ein verðlaun.
Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.
Þátttökugjöld
kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 3.000 fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn TR).
Lokað verður fyrir skráningu laugardaginn 16. janúar kl. 20.
Keppendur staðfesti þáttöku með því að millifæra þáttökugjöld til TR og með að senda póst á taflfelag@taflfelag.is (Rn: 0101-26-640269 Kt: 640269-7669)
Skráningarform
Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2021 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Sigurbjörn Björnsson.
Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.
Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Ef sóttvarnarreglur verða hertar á meðan móti stendur, og búnar eru sex eða fleiri umferðir, líkur mótinu. Annars verður mótið klárað síðar.