Skákþing Reykjavíkur hefst á miðvikudag! NÝTT SKRÁNINGARFORM



Skákþing Reykjavíkur hefst miðvikudaginn 2. febrúar kl. 18.30. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Keppendur geta tekið tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra við upphaf umferðarinnar á undan. Ef taka á yfirsetu í 1. umferð skal merkja við það á neðangreindu skráningarformi. Hálfur vinningur fæst fyrir yfirsetu. Ekki eru leyfðar frestanir í mótinu.

Athugið gjörbreytta dagskrá. Rök fyrir breytingum: Mótið mun ekki rekast á mót í Noregi sem fjölmargir Íslendingar munu sækja og því er einn dagur tvöfaldur. Tefldar verða færri skákir eina vikuna, til að liðka fyrir vegna Temprumóts TG og menn gætu þá jafnvel teflt í báðum mótum.

Dagskrá

  1. umferð miðvikudag 2. feb 18:30
  2. umferð föstudag 4. feb 18:30
  3. umferð sunnudag 6. feb 11:00 
  4. umferð sunnudag 6. feb 17:00 

 

  1. umferð miðvikudag 9. feb 18:30
  2. umferð sunnudag 13. feb 13:00

 

  1. umferð miðvikudag 16. feb 18:30
  2. umferð föstudag 18. feb 18:30
  3. umferð sunnudag 20. feb 13:00

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Hraðskákmót Reykjavíkur verður auglýst síðar.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina

Skákstjórn

IA Ríkharður Sveinsson (s. 772 290)

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 100.000
  • 2. sæti kr. 50.000
  • 3. sæti kr. 30.000

Aukaverðlaun

  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (2000+): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (1601-2000): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (1201-1600): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (0-1200): kr. 10.000.
  • Besta frammistaða miðað við eigin stig (stigalausir): kr. 10.000. (Miðað er við 1000 stig hjá stigalausum).

Keppandi getur aðeins hlotið ein verðlaun.

Oddastig (tiebreaks): 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart.

Þátttökugjöld 

kr. 6.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri (frítt fyrir félagsmenn TR).

Lokað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 2. febrúar kl. 12:00

Keppendur staðfesti þáttöku með því að millifæra þáttökugjöld til TR og með að senda póst á taflfelag@taflfelag.is (Rn: 0101-26-640269 Kt: 640269-7669) 

Skráningarform

Skráðir keppendur

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2022 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Vignir Vatnar Stefánsson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Ef sóttvarnarreglur verða hertar á meðan móti stendur, og búnar eru sex eða fleiri umferðir, líkur mótinu. Annars verður mótið klárað síðar.

Vegna sóttvarnarreglna miðar skráning við 70 manns. Um leið og 70 og hafa skráð sig er skráningu í mótið lokað. Hluti mótsins verður tefldur í húsnæði Skákskóla Íslands.