Skákmót öðlinga hefst 23. mars



Skákmót öðlinga 40 ára og eldri hefst miðvikudaginn 23. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12.  Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.

Núverandi öðlingameistari er Bragi Halldórsson.

 

Dagskrá:

  • 1. umferð miðvikudag 23. mars kl. 19.30
  • 2. umferð miðvikudag 30. mars kl. 19.30
  • 3. umferð miðvikudag 6. apríl kl. 19.30
  • 4. umferð miðvikudag 13. apríl kl. 19.30
  • 5. umferð miðvikudag 27. apríl kl. 19.30
  • 6. umferð miðvikudag 4. maí kl. 19.30
  • 7. umferð miðvikudag 11. maí kl. 19.30

Mótinu lýkur miðvikudaginn 18. maí kl. 19:30 með hraðskákmóti og verðlaunaafhendingu.  Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.

 

Þátttökugjald er kr. 4.000 fyrir aðalmótið og kr 500 fyrir hraðskákmótið.  Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi.

 

Skráning fer fram á heimasíðu T.R.