Skákmót öðlinga 40.ára og eldri hefst miðvikudaginn 17. mars kl. 19.30 í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Tefldar verða 7 umferðir eftir svissneska-kerfinu og er umhugsunartíminn 90 mínútur á alla skákina + 30 sekúndna viðbótartími á hvern leik.
Núverandi öðlingameistari er Björn Þorsteinsson.
Dagskrá:
- 1. umferð miðvikudag 17. mars kl. 19.30
- 2. umferð miðvikudag 24. mars kl. 19.30
- 3. umferð miðvikudag 14. apríl kl. 19.30
- 4. umferð miðvikudag 21. apríl kl. 19.30
- 5. umferð miðvikudag 28. apríl kl. 19.30
- 6. umferð miðvikudag 5. maí kl. 19.30
- 7. umferð miðvikudag 12. maí kl. 19.30
Mótinu lýkur miðvikudaginn 19. maí kl. 19:30 með hraðskákmóti og verðlaunaafhendingu. Keppt er um veglegan farandbikar,en auk hans eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í aðalmótinu og hraðskákmótinu.
Þátttökugjald er kr. 3.500 fyrir aðalmótið og kr 500 fyrir hraðskákmótið. Innifalið er frítt kaffi allt mótið ásamt rjómavöfflum og öðru góðgæti á lokakvöldi.
Skráning og upplýsingar veitir Ólafur S. Ásgrímsson í síma 895-5860. Netfang oli.birna@internet.is
Að kvöldi 14. mars hafa 14 keppendur skráð sig til leiks:
Þorsteinn Þorsteinsson | 2278 |
Gunnar Gunnarsson | 2231 |
Björn Þorsteinsson | 2226 |
Bjarni Hjartarson | 2162 |
Eiríkur K.Björnsson | 2025 |
Sigurður H.Jónsson | 1886 |
Pálmar Breiðfjörð | 1771 |
Einar S.Guðmundsson | 1700 |
Þorleifur Einarsson | 1525 |
Loftur H.Jónsson | 1510 |
Haukur Halldórsson | 1500 |
Björgvin Kristbergsson | 1165 |
Pétur Jóhannesson | 1025 |
Halldór Víkingsson |