Liðsmenn Skákakademíunnar komu, sáu og sigruðu í Skákkeppni vinnustaða sem fram fór í vikunni. Hlutu þeir 10,5 vinning úr tólf skákum en fimm lið tóku þátt og tefldu allir við alla. Landspítalinn var í öðru sæti með 8 vinninga og lið Verslunarskólans í því þriðja með 6 vinninga, hálfum vinningi á undan Myllunni.
Lið sigurvegaranna skipuðu þeir Björn Ívar Karlsson, Stefán Bergsson og Siguringi Sigurjónsson.
Taflfélag Reykjavíkur þakkar veittan stuðning með þátttökunni en heildarúrslit má sjá hér.