Laugardaginn 2. mars falla allar skákæfingar niður vegna þátttöku T.R. á Íslandsmóti skákfélaga í Hörpunni um helgina.
Taflfélag Reykjavíkur er með flest lið allra skákfélaga í keppninni: 6 lið í öllum fjórum deildunum.
Í fyrstu deild er A-lið TR í baráttunni um sigurinn í keppninni.
Í annarri deild er B-lið TR í baráttunni um sigurinn í deildinni.
Í þriðju deild keppir C-lið TR.
Í fjórðu deild keppir D-lið TR, svo og TR – Unglingalið A og TR – Unglingalið B.
Hvetjum alla TR-inga að koma í Hörpuna og sýna liðsmönnum sínum stuðning og fylgjast með æsispennandi viðureignum!
Umferðirnar fara fram sem hér segir:
Í kvöld, föstudaginn 1. mars kl. 20.
Laugardaginn 2. mars. kl. 11 og kl. 17.
Áfram TR!