Þegar fjórum umferðum af sjö er lokið á Skákmóti öðlinga eru Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, Ögmundur Kristinsson og alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason efst og jöfn með 3,5 vinning hver. Í fjórðu umferð, sem fór fram í gærkvöldi, gerðu Sævar og Ögmundur jafntefli í innbyrðis viðureign en Sigurlaug vann Sigurð Kristjánsson og heldur þar með áfram góðu gengi eftir sigurinn á núverandi Öðlingameistara, Þorvarði F. Ólafssyni, í fyrstu umferðinni. Fimm keppendur koma næstir með 3 vinninga.
Nú verður gert hlé á mótinu vegna páska og fer fimmta umferðin fram miðvikudagskvöldið 23. apríl. Þá mætast m.a. Ögmundur og Sigurlaug, Þorvarður og Sævar sem og Vigfús Vigfússon og Ólafur Gísli Jónsson.
- Úrslit, staða og pörun
- Skákir: 1 2 3 4 5 6 7
- Myndir
- Mótstöflur
- Öðlingameistarar
- Öðlingamótið