Jafnt og spennandi Hraðskákmót Reykjavíkur fór fram síðastliðinn sunnudag þar sem Örn Leó Jóhannsson hafði að lokum sigur eftir harða baráttu við efstu menn. Hlaut Örn 9 vinninga úr skákunum ellefu, í öðru sæti var Guðmundur Gíslason með 8,5 vinning og þriðji með 8 vinninga var Róbert Lagerman. Hinn ungi og efnilegi Dawid Kolka stóð sig mjög vel og hafnaði í 4.-5. sæti með 7,5 vinning ásamt Jóhanni Ingvasyni.
Þar sem hvorki Örn Leó né Guðmundur hafa lögheimili í Reykjavík eða eru í reykvísku taflfélagi telst Róbert því Hraðskákmeistari Reykjavíkur 2016. Að loknu Hraðskákmótinu fór einnig fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur og má finna myndir frá henni hér að neðan en verðlaunahafar sáu sér ekki allir fært um að mæta.
Hér að neðan má sjá heildarúrslit úr mótunum tveimur sem og áður birta umfjöllun um Skákþingið ásamt myndaalbúmi.
- Hraðskákmót Reykjavíkur 2016 – Úrslit
- Skákþing Reykjavíkur 2016 – Úrslit
- Skákþing Reykjavíkur 2016 – Pistill