Reykjavíkurmót grunnskólasveita í skák fór fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur
í Skákhöllinni í Faxafeni í kvöld.
Tíu sveitir frá fjórum skólum voru skráðar til keppni. Flestar voru sveitirnar frá Hólabrekkuskóla, eða fjórar talsins, þrjár komu úr Rimaskóla, tvær úr Laugalækjarskóla og ein frá Húsaskóla. Tefldar voru sex umferðir eftir Monrad- kerfi og var umhugsunartíminn 15 mínútur á skák.
Leikar fóru svo að a- sveit Rimaskóla með Hjörvar Stein Grétarsson í broddi fylkingar vann afar sannfærandi og glæsilegan sigur. Hlaut hún 23½ vinning af 24
mögulegum, 6½ vinningi fyrir ofan helsta keppinaut sinn, a- sveit
Laugalækjarskóla. Um önnur úrslit vísast til neðangreindrar töflu:
1. Rimaskóli a- sveit 23½ vinn. (1.Hjörvar Steinn
Grétarsson 2.Hörður Aron Hauksson 3.Sigríður Björg Helgadóttir 4.Hrund Hauksdóttir)
2. Laugalækjarskóli a- sveit 17 (1.Aron Ellert
Þorsteinsson 2.Einar Ólafsson 3.Örn Leó Jóhannsson 4.Benedikt Sigurleifsson)
3. Laugalækjarskóli b- sveit 13½ ( 1.Eyjólfur Emil
Jóhannsson 2.Alexander Már Brynjarsson 3.Gísli Axelsson 4.Nicola Remic)
4. Rimaskóli c-sveit 13
5. Húsaskóli 12½
6. Rimaskóli b- sveit 12½
7. Hólabrekkuskóli 12½
8. Hólabrekkuskóli b-sveit 8
9. Hólabrekkuskóli c- sveit 5
10. Hólabrekkuskóli d- sveit 2½
Reykjavíkurmót grunnskólasveita í skák er haldið á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur og annast Taflfélag Reykjavíkur mótshaldið. Skákstjórar voru Óttar Felix
Hauksson og Ólafur H. Ólafsson