Rimaskóli sigraði á Jólamóti grunnskóla, eldri flokki



Sveit Rimaskóla sigraði örugglega á Jólamóti grunnskóla í Reykjavík, eldri flokki, en það fór fram í gærkvöldi,mánudaginn 10. desember. Sveitin fékk 19 vinninga af 20 mögulegum. Laugalækjarskóli lenti í öðru sæti og Húsaskóli í því þriðja.

Mótið er samstarfsverkefni Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og Taflfélags Reykjavíkur og hefur verið haldið í vel á þriðja áratug. Þátttaka var frekar dræm, en aðeins sendu fjórir skólar sveitir á mótið, þar af þrír úr Grafarvogi, umdæmi Helga Árnasonar og Skákdeildar Fjölnis.

Úrslit urðu eftirfarandi:

1. Rimaskóli strákar:                    19 vinningar af 20 mögulegum.
2. Laugalækjarskóli a-sveit:       16/20
3. Húsaskóli                                  10/20
4. Rimaskóli stúlkur                      7/20
5. Laugalækjarskóli b-sveit         5/20
6. Foldaskóli                                  3/24

Keppendur höfðu 15 mínútur á skák.

Mótsstjóri var, að venju, Soffía Pálsdóttir frá ÍTR, en skákstjórn var í höndum Ólafs H. Ólafssonar, sem hefur verið skákstjóri frá upphafi, og Óttars Felix Haukssonar frá T.R.