Reykjavíkurmótið í skólaskák verður 7. apríl



Reykjavíkurmót í skólaskák fer fram mánudaginn 7. apríl í Taflfélagi Reykjavíkur að Faxafeni 12.

Teflt verður í einstaklingsflokkum 1.-4. bekkur5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppnisrétt hafa þeir krakkar í reykvískum grunnskólum sem teflt hafa með a-sveit síns skóla í einhverri af sveitakeppnum þessa skólaárs. Auk þess hafa allir krakkar úr reykvískum skólum, sem eru með skákstig, keppnisrétt. Telji skákkennarar/aðstandendur einhverja sem falla ekki undir ofangreind skilyrði eiga erindi á mótið er velkomið að senda fyrirspurn á mótsstjóra.

Dagskrá:

1.-4. bekkur: 16:30–18:30

5.-7. bekkur: 19:00-21:00

8.-10. bekkur 19:00-21:00 (samtímis 5.-7. bekk)

Mótsstjóri: Gauti Páll Jónsson (gauti.pall.jonsson@reykjavik.is)

ATH: Mæting og staðfesting þátttöku er í síðasta lagi 10 mínútum áður en mótið hefst.

Þátttökugjöld eru 1000kr. á mann og greiðist á skákstað. Það er posi á staðnum.

Umferðarfjöldi og tímamörk verða endanlega ákveðin þegar skráning liggur fyrir en má gera ráð fyrir 7 umferðum í hverjum flokki með umhugsunartíma 5+3.

Skráningarfrestur er til 22:00 sunnudaginn 6. apríl 

Efstu þrjú í hverjum flokki hljóta keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák.

Birnukaffi verður á sínum stað á meðan mótinu stendur! 

Skráningarform 

Þegar skráðir