Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og TR hefst sunnudaginn 26.mars



TRBanner2017_simple

Páskaeggjasyrpa Nóa Síríus og Taflfélags Reykjavíkur hefur göngu sína á morgun, sunnudaginn 26.mars. Taflið hefst klukkan 14 og er áætlað að því ljúki um klukkan 16.

Keppt verður í tveimur flokkum, 1-3.bekk (og yngri) og 4-10.bekk. Sjö umferðir verða tefldar með 5 mínútna umhugsunartíma á mann og bætast 3 sekúndur við tímann eftir hvern leik (5+3). Hraðskákstig verða reiknuð. Enginn ólöglegur leikur er leyfður og því tapast skák við fyrsta ólöglega leik.

Verðlaunapeningur og páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Þá verður jafnframt páskaegg í verðlaun fyrir efstu stúlkuna í hvorum flokki. Að móti loknu verður einn þátttakandi dregin út í happdrætti og hlýtur sá heppni að launum stórt páskaegg. Þátttakendur geta aðeins fengið eitt páskaegg hver í hverju móti Páskaeggjasyrpunnar. Að loknu þriðja og síðasta mótinu verða veitt stór páskaegg í verðlaun fyrir samanlagðan árangur.

Allir sem taka þátt í minnst tveimur af þremur mótum Páskaeggjasyrpunnar fá páskaegg í verðlaun fyrir þátttökuna og verða þau afhent í lok þriðja mótsins.

Skráning fer fram í gegnum skráningarformið hér að neðan, en einnig má nálgast það í gula kassanum á skak.is.

Taflfélag Reykjavíkur og Nói Síríus hlakka til að sjá ykkur á PÁSKAEGGJASYRPUNNI 2017!

 

Skráningarform

Skráðir keppendur