Öðlingamótið hafið – aldrei meiri þátttaka



Skákmót öðlinga hófst í gærkvöld þegar 40 keppendur settust niður við skákborðin tilbúnir að kreista líftóruna úr þeim sem andspænis sat, skáklega séð að sjálfsögðu.

Þátttaka í mótinu hefur aldrei verið meiri og var fyrra met slegið hressilega en það var 24 keppendur.  Mótið er að auki líkast til það sterkasta frá upphafi með níu keppendum yfir 2000 elo-stigum en stigahæstur þeirra er Eyjapeyinn, Þorsteinn Þorsteinsson (2271).  Taflfélag Reykjavíkur á 11 fulltrúa á mótinu, þeirra á meðal er núverandi öðlingameistari, Björn Þorsteinsson (2226), en hann er fjórði í stigaröðinni.  Skákstjórar eru hinir margreyndu, Ólafur S. Ásgrímsson og Páll Sigurðsson en sá síðarnefndi tekur einnig þátt í mótinu.

Úrslit í fyrstu umferð voru flest eftir bókinni ef frá er skilið jafntefli Birgis Rafns Þráinssonar (1636) og ofangreinds Björns.  Þá gerðu Árni Thoroddsen (1555) og Magnús Gunnarsson (2124) jafntefli sem og Bjarni Hjartarson (2112) og Jóhannes Jensson (1535).

Úrslit 1. umferðar:

Thorsteinsson Thorsteinn  0 1 – 0  0 Gudmundsson Einar S 
Ulfljotsson Jon  0 0 – 1  0 Gudmundsson Kristjan 
Halldorsson Bragi  0 1 – 0  0 Gudmundsson Sveinbjorn G 
Thrainsson Birgir Rafn  0 ½ – ½  0 Thorsteinsson Bjorn 
Ragnarsson Johann  0 1 – 0  0 Hreinsson Kristjan 
Thoroddsen Arni  0 ½ – ½  0 Gunnarsson Magnus 
Hjartarson Bjarni  0 ½ – ½  0 Jensson Johannes 
Einarsson Thorleifur  0 0 – 1  0 Bjornsson Eirikur K 
Palsson Halldor  0 1 – 0  0 Jonsson Loftur H 
Halldorsson Haukur  0 1 – 0  0 Jonsson Sigurdur H 
Isolfsson Eggert  0 1 – 0  0 Kristinsson Magnus 
Schmidhauser Ulrich  0 0 – 1  0 Matthiasson Magnus 
Fridthjofsdottir Sigurl  Regin  0 1 – 0  0 Kristbergsson Bjorgvin 
Johannesson Petur  0 0 – 1  0 Sigurmundsson Ulfhedinn 
Sigurmundsson Ingimundur  0 1 – 0  0 Adalsteinsson Birgir 
Bjornsson Gudmundur  0 0 – 1  0 Breidfjord Palmar 
Thorarensen Adalsteinn  0 1 – 0  0 Ingason Gudmundur 
Vikingsson Halldor  0 0 – 1  0 Jonsson Pall G 
Eliasson Jon Steinn  0 0 – 1  0 Gardarsson Halldor 
Bergmann Haukur  0        0 Sigurdsson Pall 

Einni skák var frestað vegna veikinda.

Önnur umferð fer fram miðvikudaginn 24. apríl og hefst kl. 19.30.  Teflt er í húsnæði T.R. – Skákhöllinni að Faxafeni 12.

Nánari upplýsingar má nálgast á Chess-Results.