Daði og Atli töpuðu í 9. umferð á Politiken



Daði Ómarsson (2091) og Atli Antonsson (1720) töpuðu báðir í níundu umferð Politiken Cup sem fram fór í dag; Daði fyrir Dananum,  Jacob Kaaber (2184), en Atli fyrir Dananum, David Kinch Palvig (1868).  Daði hefur 4,5 vinning í 131.-179. sæti en hann tapaði tveimur skákum án þess að tefla.  Atli er með 3 vinninga í 254.-276. sæti.

Alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) tapaði, Bjarni Jens Kristinsson (1985) vann og Ólafur Gísli Jónsson (1899) gerði jafntefli.  Bragi er efstur Íslendinganna með 6 vinninga en Bjarni kemur næstur með 5,5 vinning.

Rússneski stórmeistarinn og stigahæsti skákmaður mótsins, Vladimir Malakhov (2707) er einn efstur með 8 vinninga þegar einni umferð er ólokið.  Fjórir skákmenn koma næstir með 7,5 vinning og átta eru með 7 vinninga.  Það er því ljóst að lokaumferðin, sem fer fram í fyrramálið kl. 8, verður spennandi.

Á morgun mætir Daði Norðmanninum,  Andreas Larsen (1968), en Atli mætir Svíanum, Sixten Salomonsson (1860).

Að þessu sinni eru 307 skákmenn skráðir í aðalmót Politiken Cup en þar af eru fimm Íslendingar og á meðal þeirra eru tveir úr Taflfélagi Reykjavíkur; Daði Ómarsson (2091) sem er einn efnilegasti skákmaður landsins og Atli Antonsson (1720), sem snýr nú aftur að skákborðinu eftir nokkurra ára hlé.  Aðrir Íslendingar á mótinu eru alþjóðlegi meistarinn, Bragi Þorfinnsson (2377) úr Taflfélagi Bolungarvíkur, Bjarni Jens Kristinsson (1985) úr Helli og Ólafur Gísli Jónsson (1899) úr KR.

Stigahæstur keppenda er rússneski stórmeistarinn, Vladimir Malakhov (2707)  en margir þekktir skákmenn taka þátt, s.s. danski stórmeistarinn, Peter Heine Nielsen (2680), hollenski stórmeistarinn, Sergei Tiviakov (2674) og rússneski stórmeistarinn, Alexey Dreev (2660).