Matthías sigurvegari fimmtudagsmóts



Matthías Pétursson stóð uppi sem sigurvegari á fyrsta fimmtudagsmóti ársins.  TR-ingurinn ungi fór hreinlega hamförum og lagði meðal annarra Torfa Leósson og Eirík Björnsson.  Þegar upp var staðið hafði Matthías hlotið átta vinninga af tíu.  Næstir komu síðan Páll Andrason og Torfi Leósson með 7,5 vinning þar sem Páll varð hærri á stigum en hann heldur áfram góðu gengi á mótunum.

Úrslit:

  • 1. Matthías Pétursson 8 v af 10
  • 2.-3. Páll Andrason, Torfi Leósson 7,5 v
  • 4.-5. Eiríkur Björnsson, Helgi Brynjarsson 7 v
  • 6.-7. Bjarni Jens Kristinsson, Kristján Örn Elíasson 6 v
  • 8. Friðrik Þjálfi Stefánsson 5,5 v
  • 9. Elsa María Kristínardóttir 5 v
  • 10. Sigurjón Haraldsson 3,5 v
  • 11. Finnur Kr. Finnsson 3 v