Magnús Sigurjónsson hafði sigur á síðastliðnu fimmtudagsmóti. Eini keppandinn sem náði að sigra Magnús var sá yngsti, Vignir Vatnar Stefánsson. Með því náði Vignir líka öðru sætinu en þess má geta að honum voru veitt verðlaun um kvöldið bæði fyrir bestan árangur í sínum aldursflokki á laugardagsæfingum í TR, sem og bestu mætingu. Þar með er er lokið fimmtudagsmótahrinunni á þessum vetri en þráðurinn verður tekinn upp aftur í september. Úrslit í gærkvöldi urðu annars sem hér segir:
1 Magnús Sigurjónsson 5.5
2-3 Vignir Vatnar Stefánsson 5
Eiríkur K. Björnsson 5
4-5 Jón Úlfljótsson 4.5
Elsa María Kristínardóttir 4.5
6-8 Áslaug Kristinsdóttir 3.5
Finnur Kr. Finnsson 3.5
Ragnar Hermannsson 3.5
9-11 Óskar Long Einarsson 2
Björgvin Kristbergsson 2
Guðmundur G. Guðmundsson 2
12 Pétur Jóhannesson 1
- Sigurvegarar fimmtudagsmótanna í vetur