Stjórn Taflfélags Reykjavíkur minnir á verðlaunin fyrir góða mætingu á fimmtudagsmótin sem dregin verða út á síðustu æfingu vetrarins á komandi vori. Þrenn glæsileg peningaverðlaun verða dregin út og komast allir, sem mætt hafa á a.m.k. fimm mót, í pottinn. Þeir sem eru duglegir að mæta fá nafnið sitt oftar í pottinn og eiga því meiri möguleika á verðlaunum. Verðlaunin verða kr. 40.000, 20.000 og 10.000.
Þegar 16 mót hafa farið fram hafa eftirfarandi mætt fimm sinnum eða oftar:
- Kristján Örn Elíasson 15 sinnum
- Helgi Brynjarsson 12
- Páll Andrason 11
- Birkir Karl Sigurðsson, Óttar Felix Hauksson, Þórir Benediktsson, Tjörvi Schiöth, Benjamín Gísli Einarsson 10
- Jon Olav Fivelstad 9
- Jón Gunnar Jónsson, Pétur Axel Pétursson 8
- Dagur Andri Friðgeirsson, Helgi Stefánsson 7
- Ingi Tandri Traustason 6
- Dagur Kjartansson, Torfi Leósson, Jóhann H. Ragnarsson, Brynjar Níelsson 5