Laugardagsæfingin 28. febrúar



 

24 krakkar mættu á laugardagsæfinguna síðustu. Tefldar voru 5 umferðir. Alveg tilvalið að tefla mikið þessa dagana því núna um helgina fer fram Íslandsmót barnaskólasveita í Rimaskóla. En þetta er liðakeppni skólanna fyrir 1. – 7. bekk (sjá auglýsingu um mótið á skak.is frá 2. mars). Ef að skólastjórar eða kennarar skólanna eiga ekki frumkvæði af að senda sveit eða sveitir frá skólunum, ættu krakkarnir (kannski með aðstoð foreldra) að hafa frumkvæði og ræða við skólastjórnendur um að senda sveit/ir á þetta mót. Athugið sérstaklega í auglýsingunni hvenær þarf að vera búið að skrá sveitirnar! Einnig er nauðsynlegt að sveitirnar hafi liðstjóra (frá skólanum eða foreldrum) til að halda utan um hópinn á meðan móti stendur.

 

Vonandi sem flestir geti teflt um helgina með sínum skóla! En laugardagsæfingin verður á sínum stað eins og venjulega í T.R!

 

En nú aftur að skákæfingunni síðasta dag febrúar. Úrslit urðu sem hér segir:

1. Mías Ólafarson,  5v. fullt hús

2.-3.  Gauti Páll Jónsson og Kristófer Þór Pétursson 4v

4.-5. Einar Björgvin Sighvatsson og Kveldúlfur Kjartansson 3,5 v.

Þau sem einnig tóku þátt og fá mætingarstig eru: Jakob Alexander Petersen, Jóhann Markús Chun, Þorsteinn Freygarðsson, Smári Arnarson, Hörður Sindri Guðmundsson, Sigurður Alex Pétursson, Mariam Daía Ómarsdóttir, María Ösp Ómarsdóttir, Halldór Ísak Ólafsson, Atli Freyr Gylfason, Páll Ísak Ægisson, Figgi Truong, Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir, Sólrún Elín Freygarðsdóttir, Halldóra Freygarðsdóttir, Samar-e-Zahida, María Zahida, Ayub Zaman, Muhammad Zaman.

 

Eins og áður hefur verið sagt frá, fá krakkarnir stig fyrir ástundun og árangur á laugardagsæfingunum.

Stigin standa núna eftir 8 laugardagsæfingar (talið frá áramótum)

1. Gauti Páll Jónsson 18 stig

2. Mías Ólafarson 14 stig

3. Þorsteinn Freygarðsson 13 stig

4. Einar Björgvin Sighvatsson  12 stig

5.-7.  Erik Daníel Jóhannesson, Jakob Alexander Petersen, Hörður Sindri Guðmundsson 9 stig

8.-9.Gunnar Helgason, Figgi Truong 8 stig

10.-14. Tjörvi Týr Gíslason, Kristófer Þór Pétursson, Smári Arnarson, Halldóra Freygarðsdóttir, Sólrún Elín Freygarðsdóttir 7 stig

15.-18. Kristján Nói Benjamínsson, Jóhann Markús Chun, Sigurður Alex Pétursson, Páll Ísak Ægisson 6 stig

19. 23. Elvar P. Kjartansson, Ólafur Örn Olafsson, Kristján Gabríel Þórhallsson, Samar-e-Zahida, María Zahida 5 stig.

24.- 28. Elmar Oliver Finnsson, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Kveldúlfur Kjartansson, Mariam Dalía Ómarsdóttir, Atli Freyr Gylfason  4 stig.

29.-33. Tinna Chloe Kjartansdóttir, Ísak Indriði Unnarsson, Svavar Egilsson, María Ösp Ómarsdóttir, Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir 3 stig.
34.-40. Guðmundur Óli Ólafarson, Máni Elvar Traustason, Atli Finnsson, Bragi Þór Eggertsson, Madison Jóhannesdóttir, Muhammad Zaman, Ayub Zaman 2 stig.
41.-56. Ásdís Ægisdóttir, Dagný Dögg Helgadóttir, Edda Hulda Ólafardóttir, Frosti, Jón Bjartur Þorsteinsson, Jón Eðvarð Viðarsson, Kristján Arnfinnsson, Marinó Ívarsson, Sveinn Orri Helgason, Egill Orri Árnason, Þorgrímur Erik Þ. Rodriguez, Bjarki Harðarson, Gylfi Már Harðarson, Elías Magnússson, Pétur Sæmundsson, Halldór Ísak Ólafsson 1 stig.

 

 

Umsjónarmaður var Magnús Kristinsson.

Verið velkomin næsta laugardag kl. 14-16. Húsið opnar kl. 13.45.

 

Umsjón með laugardagsæfingunum skipta þau með sér þau Elín Guðjónsdóttir, Magnús Kristinsson og Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir, sem öll eru í stjórn Taflfélags Reykjavíkur og mynda ásamt Torfa Leóssyni barna- og unglinganefnd T.R.
Veffang: https://taflfelag.is/