Kristján Örn Elíasson og Sverrir Þorgeirsson sigruðu á síðastliðnu fimmtudagsmóti en þeir hlutu 9 vinninga í 11 umferðum. Í 3.-4. sæti urðu Elsa María Kristínardóttir og Örn Stefánsson með 8 vinninga. Keppendur voru 12 og tefldu allir við alla 7 mínútna skákir.
Rétt er að minna á að á síðasta móti vetrarins, fimmtudaginn 28. maí nk., verður happdrætti þar sem dregnir verða út þrír vinningar að upphæð kr. 40.000, kr. 20.000 og kr. 10.000. Þeir keppendur sem mætt hafa á minnst fimm mót í vetur verða með í útdrættinum.
Lokastaðan:
1-2 Kristján Örn Elíasson, 9 42.00
Sverrir Þorgeirsson, 9 40.50
3-4 Elsa María Kristínardóttir, 8 39.50
Örn Stefánsson, 8 34.00
5 Gunnar Finnsson, 7 31.75
6 Ólafur Gauti Ólafsson, 5.5 25.25
7 Sigurjón Haraldsson, 5 16.75
8 Sverrir Sigurðsson, 4.5 14.25
9 Páll Andrason, 4 15.00
10 Birkir Karl Sigurðsson, 3.5 9.00
11 Björgvin Kristbergsson, 2.5 9.00
12 Pétur Jóhannesson, 0 0.00