Jólahraðskákmót TR fimmtudaginn 27.desember



Jólahraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið fimmtudaginn 27. desember og hefst taflið klukkan 19:30. Tefldar verða 9 umferðir og verður umhugsunartíminn 4 mínútur á skák auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (4+2). Teflt verður í húsnæði TR að Faxafeni 12. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Þátttökugjald er 1.000kr (greiðist með reiðufé á staðnum). Frítt er fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin.

 

Skráningarform

Skráðir keppendur 

 

Sigurvegarar síðustu ára: 201Lenka Ptacnikova; 2016 Páll Agnar Þórarinsson; 2015 Vignir Vatnar Stefánsson; 2014 Oliver Aron Jóhannesson; 2013 Jóhann Ingvason; 2012 Oliver Aron Jóhannesson; 2011 Daði Ómarsson; 2010 Jóhann Ingvason; 2009 Sigurður Daði Sigfússon; 2008 Gunnar Freyr Rúnarsson; 2007 Davíð Kjartansson; 2006 Stefán Kristjánsson; 2005 Hrannar Baldursson; 2004 Björn Þorfinnsson; 2003 Arnar E. Gunnarsson; 2002 Jón Viktor Gunnarsson; 2001 Helgi Áss Grétarsson.