Jólaæfing í byrjendaflokki og stúlknaflokki var í dag!



Jólaskákæfing stúlkna, síðasta æfingin fyrir jól, fór fram í morgun.

7 flottar skákstelpur mættu tilbúnar í skemmtilegheit dagsins.

Æfingin var svohljóðandi: fyrst samvinna að leysa 9 þrautir sem byggðust á byrjanagildrum, þar sem leppanir og gafflar í bland við kæfingamát og opna h-línu voru í aðalhlutverki. Jólaleg hressing með rauðum drykk og rauðu innpökkuðu súkkulaðikexi. Því næst var svo skákboðhlaupið sívinsæla. En myndirnar sem fylgja eru einmitt teknar í þeim hamagangi Að lokum var svo verðlaunaafhending fyrir ástundun haustannarinnar 2021.

 

Þær sem fengu medalíur fyrir góða ástundun á haustönninni voru:

Gull: Bjarney Ásta Olsen og Hildur Birna Hermannsdóttir

Silfur: Bergþóra Helga Gunnarsdóttir og Gerður Helgadóttir

Brons: Rakel Elaisa Allansdóttir og Þórey Margrét Magnúsdóttir

 

Skemmtileg og hress jólaskákæfing á meðan vetrarsólin og frostið beið okkar fyrir utan. Gleðileg jól!

 

– Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir

 

Einnig var lokaæfing í byrjendaflokki og veitt þar verðlaun fyrir besta mætingu á haustönninni. Teflt var á sameinginlegri æfingu byrjendaflokks og framhaldsflokks á æfingunni með tímamörkunum 8+3, tímamörkum Íslandsmóts unglingasveita sem verður á morgun. Mætingin hjá krökkunum var mjög góð og gaman að fylgjast með framförum viku eftir viku! Lokaæfing framhaldsflokks fyrir jólafrí verður síðan fimmtudaginn 9. desember.

 

Gull: 12 mætingar af 13

 

Hjalti Ásgeir Björnsson

Kormákur Krummi Snorrason

 

 

Silfur: 10 mætingar af 13

Haukur Leó Styrmisson

Magnús Einar Ragnarsson

Símon Steinar Ragnarsson

 

Bronz: 9 mætingar af 13

 

Baltasar Össur Hólmsteinsson Loncar

Ingólfur Sveinsson

Kolbeinn Mikael Hermannsson

Styrmir Alvar Brynjarsson

Tryggvi Smári Bjarkason

 

– Torfi Leósson og Gauti Páll Jónsson 

May be an image of 3 manns, sitjandi fólk, chess og innanhúss
May be an image of 6 manns, sitjandi fólk, chess, útivist og innanhússMay be an image of 4 manns, sitjandi fólk, chess, útivist og innanhússMay be an image of 4 manns, sitjandi fólk, chess og innanhúss
May be an image of 7 manns og people standing
Engin lýsing til