Jóhann sigraði á fimmtudagsæfingu



Jóhann H. Ragnarsson sigraði nokkuð örugglega á öðru fimmtudagsmóti vetrarins þegar hann hlaut 8,5 vinning í níu skákum og leyfði aðeins eitt jafntefli í lokaumferðinni.  Annar varð Þórir Benediktsson með 8 vinninga og í þriðja sæti hafnaði Helgi Brynjarsson með 7 vinninga.

Úrslit urðu annars eftirfarandi:

1. Jóhann H. Ragnarsson 8,5 v af 9

2. Þórir Benediktsson 8 v

3. Helgi Brynjarsson 7 v

4. Óttar Felix Hauksson 5 v

5-6. Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir, Jon Olav Fivelstad 4 v

7. Birkir Karl Sigurðsson 3,5 v

8. Helgi Stefánsson 3 v

9. Hjálmar Sigvaldason 2 v

Að venju myndaðist þægileg stemning í Skákhöll TR og heitt var á könnunni ásamt meðlæti.  Stjórn TR minnir á næsta mót eftir viku og hvetur alla skákáhugamenn til að mæta en því oftar sem er mætt, því meiri líkur eru á að vinna til veglegra verðlauna í lok vetrar.