Önnur umferð í d-flokki fór fram í kvöld, mánudagskvöld. Lið Salaskóla vann aftur, en nú með minnsta mun, 2,5-1,5 og réði baggamuninn gefins vinningurinn sem fékkst á móti Skottu, heiðursfélaga Taflfélags Reykjavíkur.
Fyrsta sigur TR liðsins vann Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir.
Úrslit urðu þessi:
Salaskóli – TR
Ragnar Eyþórsson – Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir 0-1
Birkir Karl Sigurðsson – Kristján Heiðar Pálsson 0,5-0,5
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Hjálmar Sigurvaldason 1-0
Páll Andrason – “Skotta” 1-0*
3. umferð verður tefld á miðvikudagskvöld kl.19. Þá mætast:
TR – Salaskóli
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir – Birkir Karl Sigurðsson
Kristján Heiðar Pálsson – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
Hjálmar Sigurvaldason – Páll Andrason
“Skotta” – Ragnar Eyþórsson