Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 miðvikudaginn 19.október kl. 19:30. Tefldar verða 11 umferðir eftir svissnesku kerfi og er umhugsunartíminn 3 mínútur auk þess sem 2 sekúndur bætast við eftir hvern leik (3+2). Þessi tímamörk eru þau sömu og FIDE notar í heimsmeistaramótinu í hraðskák. Mótið verður jafnframt reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Þátttökugjald er 1000kr fyrir 16 ára og eldri, en 500kr fyrir 15 ára og yngri. Félagsmenn TR sem eru 15 ára og yngri fá frítt í mótið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin. Auk þess verður krýndur Hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Skráning í mótið fer fram á mótsstað á miðvikudag og lýkur henni um kl.19:25.
Yfirdómari mótsins verður Ólafur Ásgrímsson.
Í mótinu í fyrra sigraði Oliver Aron Jóhannesson með 11,5 vinning í 14 skákum. Hilmir Freyr Heimisson hlaut 10 vinninga í 2.sæti og Dagur Ragnarsson hreppti þriðja sætið með 9,5 vinning. Hilmir Freyr er núverandi Hraðskákmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Nánari upplýsingar um mótið í fyrra má finna hér: Hraðskákmót TR 2015
Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Haustmót Taflfélags Reykjavíkur.