Hraðskákmót T.R. fer fram á sunnudag



Hraðskákmót Taflfélags Reykjavíkur verður haldið í húsnæði félagsins að Faxafeni 12 sunnudaginn 21.október kl. 14:00.  Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Swiss Perfect kerfi og er umhugsunartími 5 mínútur á skák.

Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, en frítt fyrir 15 ára og yngri.  Þrenn verðlaun verða i boði.

Að loknu hraðskákmótinu fer fram verðlaunaafhending fyrir Tölvuteksmótið 2012 – Haustmót T.R.

Núverandi Hraðskákmeistari T.R. er Halldór Pálsson.