Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið Í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 7. febrúar kl. 14. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Þrenn verðlaun í boði. Þá verður verðlaunaafhending fyrir KORNAX mótið 2010 – Skákþing Reykjavíkur.
Núverandi hraðskákmeistari er Hjörvar Steinn Grétarsson.