Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudag



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 8. febrúar kl. 14.

Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik).

Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri. Skráning fer fram á skákstað.

Þrenn verðlaun í boði.

Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur 2015.

Núverandi hraðskákmeistari er Róbert Lagerman.

  • Hraðskákmeistarar Reykjavíkur
  • Lokastaða Skákþings Reykjavíkur 2015