Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á morgun sunnudag



Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur Faxafeni 12 sunnudaginn 30. janúar kl. 14.

 

Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.

 

Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.

 

Þrenn verðlaun í boði.   Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir  KORNAX mótið 2011 – Skákþing Reykjavíkur.

 

Núverandi hraðskákmeistari er Torfi Leósson.