Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur Faxafeni 12 sunnudaginn 30. janúar kl. 14.
Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald er kr 500 fyrir 16 ára og eldri en frítt fyrir 15 ára og yngri.
Þrenn verðlaun í boði. Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir KORNAX mótið 2011 – Skákþing Reykjavíkur.
Núverandi hraðskákmeistari er Torfi Leósson.