Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið Í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12. sunnudaginn 1. febrúar nk kl. 14. Tefldar verða 2×7 umferðir eftir Sviss Perfect kerfi. Umhugsunartími verður 5 mínútur á skák.
Þátttökugjald kr 500 fyrir 16 ára og eldri, 15 ára og yngri frítt.
Þrenn verðlaun í boði. Þá verður verðlaunaafhending fyrir Skeljungsmótið 2009 – Skákþing Reykjavíkur.
Núverandi meistari er Davíð Kjartansson.