Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 12. apríl í félagsheimili TR að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik (umferðum kann að vera fjölgað í níu ef næg þátttaka verður). Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk fyrir skemmstu.
Þátttökugjald er kr. 1.000 og er í því innifalið ilmandi nýtt kaffi. Greiða skal með reiðufé við upphaf móts.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra (Fide) hraðskákstiga.
Núverandi Hraðskákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.
Skákmenn 40+ eru hvattir til að fjölmenna!
Skráning fer fram hér að neðan.