Hraðskákmót öðlinga fer fram í dag



odl15-70

Hraðskákmót öðlinga fer fram miðvikudaginn 18. maí í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mín + 2 sek á leik.  Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk síðastliðið miðvikudagskvöld með sigri Stefáns Arnalds. Þátttökugjald er kr. 500 og er í því innifalið kaffi og góðgæti. Skákmenn 40+ eru hvattir til að fjölmenna!

Núverandi Hraðskákmeistari öðlinga er Júlíus L. Friðjónsson.

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra (Fide) hraðskákstiga.

Greiða má þátttökugjald inn á reikning 0101-26-640269 kt. 6402697669 og senda kvittun á taflfelag@taflfelag.is með skýringu “hrad-odl16”. Einnig er hægt að greiða á staðnum með reiðufé.