Hraðskákmót öðlinga fer fram næstkomandi miðvikudagskvöld í félagsheimili T.R. að Faxafeni 12. Mótið hefst kl. 19.30 og er opið fyrir alla 40 ára (á árinu) og eldri. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mín. umhugsunartíma. Í lok mótsins fer fram verðlaunaafhending fyrir Hraðskákmótið sem og Skákmót öðlinga sem lauk s.l. miðvikudagskvöld með sigri alþjóðlega meistarans Sævars Bjarnasonar. Þátttökugjald er kr. 500 og er í því innifalið kaffi og góðgæti. Skákmenn 40+ eru hvattir til að fjölmenna!
Núverandi Hraðskákmeistari öðlinga er Róbert Lagerman.
- Skákmót öðlinga 2014
- Hraðskákmót öðlinga 2013